Menu Close
Uppselt

Leirnámskeið – Grunnámskeið í leirmótun 17 – 26. mars 2025

43.000 kr.

Námskeiðið er hugsað fyrir byrjendur og þá sem vilja fá upprifjun í handmótun.

Á námskeiðinu eru kenndar helstu grunnaðferðir handmótunar.
Kennd verður mótunaraðferð sem kallast holuaðferðin, slönguaðferðin, plötuaðferðin og klumpsaðferðin.

Hvert námskeið er haldið í þjá daga, frá klukkan 17:00 – 20:30

Kennari: Guðbjörg Björnsdóttir

Dagsetning: 17. mars, 19. mars og 26. mars

Allt efni er innifalið

Vöruflokkur
Deila

Upplýsingar

Kennari er Guðbjörg Björnsdóttir leirlistakennari
Guðbjörg hefur starfað við kennslu frá því að hún lauk námi í Kennaraháskóla Íslands árið 1991 og árið 2015 lauk Guðbjörg námi í leirkeragerð við Myndlistaskólann í Reykjavík.
Undanfarin ár hefur hún starfað sem kennari og leirlistamaður hefur haldið fjölmörg námskeið í leirlist í Myndlistaskólanum í Reykjavík, barna- og unglinganámskeið, námskeið fyrir fullorðna og námskeið í Keramikdeild skólans.

Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki (sjá t.d. www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum